Aðsókn að öll þau söfn sem prýða landsins byggðir hefur aukist til muna á allra síðustu árum, þökk sé auknum menningaráhuga í kjölfar hrunsins og þá ekki síður stórauknum straumi erlends ferðafólks til landsins.
Þetta kemur fram í samtali Sigmundar Ernis við Ólöfu Kristínu Sigurðardóttur, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur í þættinum Kúltúr klukkan 20:45 í kvöld, en hann verður framvegis á þeim stað í kvölddagskrá Hringbrautar frá mánudegi til og með fimmtudegi og fjallar um menningarlífið í landinu í allri sinni mynd. Allar ábendingar um efni þáttarins eru vel þegnar á [email protected], en það er netfang Sigmundar Ernis, umsjármanns þáttarins.
Ólöf Kristín segir safnastarfið á Íslandi afar kraftmikip sem sést kannski best á því að velta íslensku safnanna nemur yfir 3 milljörðum króna á ári og fer mjög vaxandi, en gestir á safnið sem hún stýrir fyrir hönd borgarinnar er sótt af á þriðja hundrað þúsund gestum á ári.
Kúltúr er hluti af Lífinu milli klukkan 20:00 og 21:00 á Hringbraut, virka daga, sem fjallar um áhugamál fólks, hlátur þess og sorgir, svo og menningu og listir í samfélaginu, en síðastnefndi hluti Lífsins er frumsýndur sem fyrr segir klukkan 20:45 í kvöld.