Forvígismenn beggja íslensku flugfélaganna, Icelandair og WOW air, hafa breytt reglum sem lúta að viðveru flugstjóra í flugstjórnarklefum véla sinna eftir að í ljós kom hvernig farþegaþota Germanwings fórst í Ölpunum fyrr í vikunni. Talið er víst að annar flugmanna hennar hafi vísvitandi flogið vélinni, með 150 manns um borð, niður í fjallgarðinn með þeim afleiðingum að allir um borð fórust samstundis. Rannsakendur slyssins segja að varla leiki lengur nokkur vafi á því að maðurinn hafi lokað starfsfélaga sinn úti með því að afkóða leynilega læsingu á flugstjórnarhurðinni jafnóðum og reynt var að opna hana að utan.
Þýski flugmaðurinn sem olli þessu voðaverki mun hafa leitað sér hjálpar vegna alvarlegs þunglyndis árið 2009 og hitti enn reglulega lækna vegna veikinda sinna að sögn þýska blaðsins Bild, en það segist í dag hafa gögn þessa efnis eftir undir höndum. Maðurinn, Andreas Lubitz, sem var 28 ára, tók sér hlé frá flugnámi árið 2008. Hann lauk síðar náminu og hlaut réttindi til að fljúga Airbus A320 árið 2013.
Íslensku félögin hafa nú tekið þá afdráttarlausu ákvörðun að aldrei séu færri en tveir úr áhöfn í flugstjórnarklefanum þannig að flugfreyja eða flugþjónn verði í honum þurfi annar flugmannanna að fara þaðan af einhverjum ástæðum.