Íslensku everstfaranir á leið heim

Íslensku Everestfararnir Ingólfur Axelsson og Vilborg Arna Gissurardóttir hafa afráðið að halda heim á leið eftir hamfaraflóðin í hlíðum Everest sem riðu þar yfir eftir stóra jarðskjálftann um síðustu helgi. Þau eru væntanleg til Katmandú undir næstu helgi.


Þau eru bæði þakklát fyrir að hafa sloppið á lífi frá flóðunum sem féllu á búðir göngumanna í hlíðum Everest á laugardag. Ingólfur missti 5 liðsmenn úr gönguhópi sínum, Vilborg missti 3 úr sínu liði. Þau segja eyðilegginguna í grunnbúðunum algera.


Bæði voru þau að reyna við Everest í annað sinn, en fyrir ári urðu þau frá að hverfa vegna mannskæðra snjóflóða á svæðinu.


Nú er óttast að vart færri en 10 þúsund manns hafi farist í hamförunum í Nepal sem eru þau verstu í 80 ár í landinu. Í höfuðborginni Katmandú er talið að á þriðja þúsund hafi farist, en þar er eyðileggingin gríðarleg. Fjöldi þorpa í fjalllendinu utan höfuðborgarinnar sópaðist niður hlíðar þegar skjálftinn hleypti flóðum af stað en ljóst er að enn líða margir dagar þangað til heildarmynd fæst á manntjón og eyðilegginguna í landinu.