Hallgrímur Helgason, Sigrún Eldjárn og þau Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Jón Baldur Hlíðberg hlutu íslensku bókmenntaverðlaunin í ár. Auk verðlaunagripa og verðlaunaskjala hlutu höfundar hvers verks eina milljón króna í verðlaunafé. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Vísir.is greinir frá.
Í flokki fagurbókmennta vann Hallgrímur Helgason fyrir bók sína Sextíu kíló af sólskini, í flokki barna- og ungmennabóka vann Sigrún Eldjárn fyrir Silfurlykilinn og í flokki fræðirita og bóka almenns efnis unnu Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Jón Baldur Hlíðberg fyrir Flóru Íslands – Blómplöntur og byrkingar.