Íslensku álfyrirtækin hríðfalla í verði

Hluta­bréfa­verð alþjóðlegra ál­fyr­ir­tækja með starf­semi á Íslandi hef­ur hríðlækkað á síðastliðnum tólf mánuðum. Bréfin hafa verið að lækka á bilinu 34% til 73% á þessum tíma.

Morgunblaðið birtir samantekt þessa efnis þar sem segir að gengi hluta­bréfa í Cent­ury Alum­in­um, sem rek­ur meðal ann­ars Norðurál á Grund­ar­tanga, hafi lækkað um 73%, gengi Alcoa, sem á meðal ann­ars ál­ver á Reyðarf­irði, hafi farið niður um 42% og þá hafi gengi bréfa í Rio Tinto Alcan, sem rek­ur ál­verið í Straums­vík, fallið um 34%.

Á sama tíma hef­ur ál­verð lækkað um 24%.

Í frétt blaðsins er sá fyrirvari hafður á að mikl­ar sveifl­ur hafi verið á hluta­bréfa­verði fyr­ir­tækj­anna þriggja á und­an­förn­um árum. Þannig var hluta­bréfa­verð í Cent­ury í 31 dal á hlut þegar það var sem hæst í nóv­em­ber í fyrra en lægst hef­ur það verið 5,6 dal­ir á hlut í júlí­mánuði árið 2012, þegar litið er til sein­ustu fimm ára. Nú stend­ur það í um 5,8 döl­um á hlut.

Þá hélst hluta­bréfa­verð í Alcoa til­tölu­lega lágt, á bil­inu sjö til tíu dal­ir á hlut, frá seinni hluta árs 2011 til loka árs 2013. Hæst náði það í tæp­lega átján döl­um á hlut snemma árs 2011 og var það jafn­framt á svipuðum slóðum í nóv­em­ber í fyrra. Nú er það um 9,4 dal­ir á hlut.

Mestu sveifl­urn­ar hafa verið á hluta­bréfa­verði Rio Tinto Alcan. Þegar litið er til sein­ustu fimm ára sést að það náði hvað hæst í 73 döl­um á hlut í júlí 2011 en lægst var það í 39 döl­um á  hlut tveim­ur árum síðar. Fyr­ir tólf mánuðum var það í 57,6 döl­um en hef­ur síðan þá hríðfallið um 34%, niður í 38,2 dali.

Í fréttinni er bent á að verð á áli hafi lækkað nokkuð skarpt að und­an­förnu og hafi það nú ekki verið lægra síðan fjár­málakrís­an reið yfir. Mikl­ar um­frambirgðir og of­fram­leiðsla voru tald­ar helstu skýr­ing­arn­ar á lækk­andi ál­verði eft­ir að fjár­málakrepp­an skall á en und­an­farið hafa augu manna beinst í æ meira mæli að kín­versk­um álfram­leiðend­um.

Bent er á að Kín­verj­ar ráða nú yfir meira en helm­ingi allra ál­birgða í heim­in­um, en þeir áttu aðeins um fimmt­ung fyr­ir rúm­lega tíu árum síðan. Hæga­gang­ur í kín­verska hag­kerf­inu hef­ur orðið til þess að Kín­verj­ar eru nú farn­ir að flytja út fram­leiðslu sína í aukn­um mæli. Eiga grein­end­ur von á holskeflu af kín­versku áli á heims­markaðinn á næst­unni. Í ný­legri um­fjöll­un Fin­ancial Times seg­ir að þessi mikla aukn­ing í Kína megi rekja til ódýrr­ar orku og og hag­kvæmra ál­bræðslna, sem grein­ar­höf­und­ur seg­ir að séu orðnar þær hag­kvæm­ustu í heimi.