Fyrirtæki Jóns Ólafssonar sem framleiðir Icelandic Glacial flöskuvatnið hefur gert samning um að allt vatn sem í boði verður á tónleikum Rolling stones sé Icelandic Glacial.
The Rolling Stones mun nú síðar í maí leggja á ný í tónleikaferðalagið um heiminn sem nefnist No Filter.
Í frétt sem sagt er frá á vef Vb.is og heimasíðu Icelandic Glacial ráða umhverfisverndarsjónarmið mestu, vatn Icelandic Glacial er sett á flöskur á umhverfisvænan hátt og er fyrsta tegund flöskuvatns í heiminum sem er vottað sem kolefnishlutlaust.