Íslenskt rannsóknarskip á kafbátaveiðum

Enn er óvíst hvaðan kaf­bát­ur­inn er sem fannst ný­verið í sænska skerjaf­irðinum, seg­ir Kristján Eld­járn Jó­hann­es­son, verk­fræðing­ur og einn eig­enda Ixplor­er, sem kom að leit­inni sem staðið hef­ur yfir í um tvö ár.

Kristján seg­ir í samtali við mbl.is í dag að Ixplor­er starfi víða um heim og tek­ur að sér alls kon­ar botn­verk­efni, meðal ann­ars leit að skips­flök­um líkt og í þessu verk­efni í Svíþjóð.

Að sögn Kristjáns hafa fjöl­miðlar farið offari í mál­inu og gert meira úr fund­in­um en ástæða sé til. Sím­inn hjá hon­um hef­ur ekki stoppað frá því í gær en get­gát­ur eru um að kaf­bát­ur­inn sé rúss­nesk­ur. Það seg­ir Kristján alls óvíst og búið sé að blása málið út án nokk­urr­ar ástæðu. Ekki liggi fyr­ir 

„Eins og þetta hef­ur alltaf snúið að okk­ur þá er þetta yfir 100 ára gam­alt flak sem hef­ur fyrst og fremst söfn­un­ar­gildi eða sem safn­grip­ur. Við lít­um á það sem slíkt en þegar búið er að blanda sænska hern­um og ýms­um í þetta og blása frétt­ina út get­um við í raun­inni ekki sagt neitt um fund­inn nema að Ixplor­er hafi staðið við alla sína samn­inga,“ seg­ir Kristján í sam­tali við mbl.is.