Íslenskt handverk alltof ódýrt!

Guðfinna Helgadóttir sem rekur verslunina Virku segir í þættinum Lífsins list hjá Sirrý sem frumsýndur var á föstudsagskvöld á Hringbraut að það sé skandall hvað íslenskar hannyrðakonur verðleggi vinnu sína lágt.

Vinna þeirra er almennt allt of lágt metin. Guðfinna þekkir þetta af eigin reynslu. Hún heldur námskeið fyrir bútasaumskonur af öllu landinu og sér hve gríðarleg vinna, sköpun og nákvæmni er oft lögð í bútasaumsteppi og aðra handavinnu en síðan er þetta verðlagt langt undir vinnuframlagi og kostnaði. 

Í þættinum sýnir hún bútasaumsteppi sem hún var í mörg hundruð klukkustundir að vinna af að mikilli nákvæmni og notaði til þess dýrt og vandað efni. Karlmaður kom í verslunina til hennar og vildi kaupa þetta stóra handgerða teppi og borga fyrir það \"allt að 20 þúsund krónum\" eins og hann orðaði það. En Guðfinna Helgadóttir tjáði honum að verkið væri minnst 350-400 þúsund króna virði. 

Sjá nánar í Lífsins list á hringbraut.is.