Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands sagði í sjónvarpsþættinum Neytendavaktinni í gærkvöld að íslenskt grænmeti væri afbragðs dæmi um mikilvægi þess að afnema tolla af fleiri vörum og breyta styrkjafyrirkomulagi í landbúnaði þar sem það á við. Þegar þetta hafi verið gert með íslenskt grænmeti, svo sem agúrkur og tómata hafi það leitt til allt að 45% verðlækkunar á innlendri matvöru á sínum tíma - og þar hafi raunin orðið sú að sala á íslensku grænmeti hafi aukist. Án efa muni sömu lögmál gilda um hliðstæða matvöru sem framleidd sé hér á landi í skjóli svo hárra verndartolla að greinin þurfi lítt að leggja á sig. Í nýrri skýrslu sem Viðskiptaráðið gaf út fyrir skömmu, segir að um 40% matvælaútgjalda heimila, megi rekja til vörutegunda þar sem tollvernd er við lýði.
Neytebdavaktina má nálgast í heild sinni á hringbraut.is og klippur úr þættinum á forsíðu vefjarins.