Facebook semur við íslenskt fyrirtæki

Íslenska tæknifyrirtækið Videntifier hefur gert samning við Facebook um afnot af myndgreiningartækni fyrirtækisins.

Með tækninni geta tölvur borið kennsl á flókið myndefni, bæði kyrrmyndir og kvikmyndir, óháð framsetningu og breytingum.

Fyrirtækið hefur hingað til selt löggæslu- og eftirlitsstofnunum háþróaðan myndgreiningarhugbúnað sinn, en hann hefur meðal annars verið notaður til að berjast gegn barnaníðingum og af höfundarréttarsamtökum, að því er kemur fram á mbl.is.

Videntifier var stofnað árið 2008 til að hagnýta byltingarkennda tækni sem þróuð var í Háskólanum í Reykjavík. Það veltir um 100 milljónum króna á ári og hjá því starfa 11 manns. Herwig Lesjek og Friðrik Ásmundsson voru lykilstofnendur og þróuðu tæknina í samstarfi við Björn Þór Jónsson, dósent við HR og fleiri. Videntifier er í eigu stofnenda, einkaaðila og Háskólans í Reykjavík.

Herwig segir að með samningnum við Facebook komi tekjur sem muni nýtast við frekari þróun og markaðsstarf en tekur fram að tekjur í tengslum við löggæslumál séu enn stærsti tekjuliður fyrirtækisins.