Í þættinum Fólk og frumkvæði – nýsköpun í útrás, er meðal annarra rætt við forsvarsmenn Foss Distillery, en það er fyrirtæki staðsett í Mosfellsbæ sem framleiðir áfengi úr íslensku birki. Þetta eru líkjörinn Björk og snafsinn Birkir, en safanum í drykkjunum er safnað í Hallormsstaðaskógi.
Foss Distillery veltir nú þegar nokkur hundruð milljónum á ári og eru vörurnar seldar bæði í Danmörku og Bandaríkjunum. Björk og Birkir njóta líka mikilla vinsælda hér á landi hjá erlendum ferðamönnum. Fyrirtækið er innan við fimm ára gamalt og segja forsvarsmenn að mikil tækifæri geti legið í því sýrópi sem hægt er að vinna úr safa íslenskra birkitrjáa.
Í þætti kvöldsins, ræðir Sölvi einnig við forsvarsmenn Omnom, sem framleiðir hágæða íslenskt súkkulaði. Sú vara hefur frá upphafi verið ætluð erlendum markaði.
Þátturinn Fólk og frumkvæði - nýsköpun í útrás, er sýndur á þriðjudagskvöldum klukkan 21.30
Smelltu til að horfa á þáttinn