\"Eins og vaxtastigið er núna í landinu þarf leiga einfaldlega að vera svo há til að geta staðið undir fjármagnskostnaði að það mun ekki skila neinu fyrir almenning,\" segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins um aðstæður á húnsæðismarkaði.
Helgi er í viðtali í Viðskiptablaði Morgunblaðsins þar sem hann segir að félag á borð við Regin hafi ekki áhuga á að hasla sér völl á leigumarkaði íbúðahúsnæðis, til þess séu aðstæðar of fráleitar; lánsfé kosti alltof mikið hér á landi. Eina leiðin í þeim efnum sé að mynda breiða samstöðu margra aðila sem séu tilbúnir að gefa afslátt af ávöxtun sinni, ellegar að lækka fjármagnskostnað með einhverju móti: \"Lífeyrissjóðir verða að koma að þessu, verkalýðsfélögin, atvinnulífið og hið opinbera,\" segir Helgi í blaðinu.
Hann segir almennan markað ekki ráða við átak í uppbyggingu leiguhúsnæðis á þeim lánakjörum sem bjóðast hér á landi: \"Það verður í raun að vera hægt að lána út fjármuni á raunvöxtum sem liggja við 3%,\" segir hann og bætir við: \"Ég er einfaldlega þeirrar skoðunar að það sé ekki hægt að byggja upp leigufélög sem mæta þeirri þörf og eftirspurn hvað varðar leiguverð á íbúðamarkaði fyrr en þessu verður kippt í liðinn.\"
Hann segir að stór leigufélög með 2.000 til 3.000 eignir á bak við sig hafi gengið í Skandinavíu með aðkomu sjóða sem séu tilbúnir að gefa afslátt af ávöxtun sinni - og slíkt verði að skoða hér á landi á næstu misserum.