Síðastliðið haust samþykkti Evrópusambandið reglugerð sem gerir seljendum vöru og þjónustu á netinu skylt að veita öllum neytendum rétt til viðskipta á Evrópska efnahagssvæðinu. Reglugerðin tók gildi gildi í desember síðastliðnum en áður en reglurnar taka gildi hér á landi þarf að innleiða þær inn í EES-samninginn.
„Þetta er náttúrulega mjög mikil réttarbót fyrir okkur Íslendinga. Þetta þýðir það að hver sem er, sem sendir vörur á milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins, verður nú að senda til Íslands,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, í samtali við Fréttablaðið.
Hann segir breytinguna frábæra fyrir íslenska neytendur þar sem allir á efnahagssvæðinu fái með henni aðgengi að vörum á sama verði. „Þá er ekki hægt að hafa mismunandi verð á mismunandi landssvæðum. Eins og er þá senda ekki ýmsar verslanir í Evrópu vörur til Íslands, eða neita að taka við greiðslum af íslenskum kortum. Sumar af þessum vörum eru seldar hér á landi á hærra verði, eftir þetta þá geta Íslendingar keypt vörur á netinu á sama verði og gengur og gerist í Evrópu.“
Lagt fyrir Alþingi næsta vor
Búið er að leggja fram drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og er nú það ríkjanna innan efnahagssvæðisins að taka ákvörðun. Íslenskir neytendur þurfa líklega að bíða um stund eftir því að öðlast þessi auknu réttindi. Í svari atvinnuvegaráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins segir nefnilega að stefnt sé að því að leggja málið fram á Alþingi næsta vor.
Breki á þó ekki von á öðru en að innleiðingin verði samþykkt á Alþingi. „Þetta hlýtur að fara í gegn fljótt og örugglega. Ég sé engan fyrir mér hreyfa mótmælum við þessu, það yrði mjög skrítið. Þetta er eitt af þessu jákvæða sem fylgir því að vera innan EES, jafn aðgangur að markaðnum. Þetta þýðir það að nú munum við ekki aðeins bera saman verð á vörum í innlendum verslunum, heldur verð um alla Evrópu.“
Engar áhyggjur af tollum
Breki segir að ekki þurfi að hafa neinar áhyggjur af tollum verði nýju reglurnar innleiddar í EES-samninginn. „Þetta er tollabandalag, það er svo einfalt. Póstinum hér heima er nú heimilt að leggja sérstakt gjald á alla pakka sem koma frá útlöndum, það mun þá leggjast ofan á sendingarkostnaðinn. Það eru nokkur hundruð krónur.“