Fjárveitingin kemur á óvart

Fjárstuðningur sá sem stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa heitið múslimum á Íslandi til að reisa mosku sína í Sogamýri kemur þeim síðarnefndu í opna skjöldu. Eins og fram hefur komið lýsti nýr sendiherra Sáda á Íslandi því yfir við forseta Íslands að ráðamenn í Ryjhad vildu styrkja moskubygginguna með vel á annað hundrað milljónum króna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sagt að hann vilji láta mannréttindasvið borgarinnar skoða hvort einhverjar kvaðir fylgi þessari peningagjöf eins og fram kemur annars staðar hér á fréttasíðunni. Ibrahim Sverrir Agnarsson, formaður Félags múslima á Íslandi, kveðst fyrst hafa heyrt af þesum áformum Sáda við lestur fjölmiðla, fréttirnar komi sér algerlega á óvart; hann hafi ekki heyrt hvort fjármagninu fylgi einhverjir skilmálar en tekur skýrt fram að það sé skýr stefna Félags múslima á Íslandi að taka aldrei við peningum sem skerði sjálfstæði þess.