Íslenskir karlar mega gefa sæði í nýjan banka

 Fyrsti formlegi eggja- og sæðisbanki á Íslandi hefur störf núna í febrúar með góðri samvinnu við systurbanka í Svíþjóð. Helga Sól Ólafsdóttir stýrir bankanum en hún er doktor í lýðheilsfræðum og félagsráðgjafi. Hún hefur unnið um langt árabil við að sinna barnlausum foreldrum, bæði hérlendis og ytra.

Nú þegar hafa konur gefið egg hér á landi en nýlundan er að íslenskir karlar geta gefið sæði í íslenskan sæðisbanka sem verður vel skilgreindur. Til dæmis verður öllum hlutaðeigandi veitt ráðgjöf um að upplýsa börn um hvaðan þau koma enda segir Helga Sól það vera reyndin að börn vilji vita slíka hluti. Og snemma á lífsleiðinni skulu börnum sagt hvernig í pottinn er búið. 

Nokkuð ströng skilyrði eru fyrir því að gefa sæði eða egg. Allir sem vilja gefa slíkt fari í heilsufarspróf og greiðslan er óveruleg. \"Við vinnum ekki með hagnaðarsjónarmið í huga enda eru viðbrögðin strax núna í þeim anda\", segir Helga Sól í viðtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld.