Íslenskir háskólar fjársveltir

 

 

OECD hefur sent frá sér nýja skýrslu um stöðu menntunar í heiminum (Education at a Glance 2015). Þar koma meðal annars fram upplýsingar um heildarframlög á hvern háskólanema.

Nýjustu tölurnar eru frá 2012 og sýna  lág framlög til háskólastigsins á Íslandi í samanburði við Norðurlönd og önnur OECD-ríki. Heildarframlög á hvern háskólanema á Íslandi árið 2012 voru helmingi lægri en á hinum Norðurlöndunum og um þriðjungi lægri en meðaltalið í OECD.

Rektor Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson segir að þessu þurfi að breyta.

Sigurður Kristinsson prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri segir að tölurnar séu „sorgleg staðreynd um fjársvelti íslenskra háskóla í samanburði við nágrannaríkin og OECD“

Þau ummæli lætur Sigurður falla á fésbók þar sem hann tengir við færslu rektors sem birti myndina að ofan.

„Þetta eru framlög á hvern nemanda þannig að smæð þjóðarinnar er okkur engin afsökun - þetta sýnir bara forgangsröðunina hér á landi,“ segir dr. Sigurður Kristinsson.