Afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda er með því allra lægsta í Evrópu. Oft munar tugum prósentna. Franskir bændur fá til að mynda um 60% hærra verð en þeir íslensku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssamtökum sauðfjárbænda þar sem greint er frá töluveðri söluaukningu lambakjöts frá júlí á síðasta ári til sama tíma í ár, en jafnfamt er þess getið í tilskrifi samtakanna að staða bænda á íslandi sé mun lakari en þekkist á meginlandi Evrópu.
Kílóverð á lambakjöti til bænda er hæst í Frakklandi sem fyrr segir en einnig mun hærra en á Íslandi í löndum á borð við Svíþjóð, Bretland, Holland, Belgíu, Asuturríki, Þýskaland, Danmörku, Írland og Spán, en á lista samtakanna er Pólland eina landið sem borgar minna til bænda í Evrópu.
Meðaltal 25 Evrópuríkja í krónum talið til bænda er um 750 krónur fyrir kílóið af lambakjöti, en 600 krónur á Íslandi.
\"Hærra verð til bænda í Evrópu þýðir hins vegar ekki að verð til neytenda sé nauðsynlega hærra. Bændur í Evrópu fá einfaldlega stærri hluta af útsöluverðinu til sín. Í Bretlandi fá bændur t.d. á milli 50% og 60% af endanlegu útsöluverði í sinn hlut,\" segir í tilkynningu bændanna sem benda á mismuninn: \"Algengt er að íslenskir bændur fái sem nemur á bilinu 25% til 41% af endanlegu útsöluverði. Þegar tekið hefur verið tillit til 11% virðisaukaskatts þýðir þetta að milliliðir; sláturhús, kjötvinnslur og verslanir taka á bilinu 49% til 65% af endanlegu útsöluverði á lambakjöti til sín.\"
Og sauðfjárbændur una ekki glaðir við sitt miðað við kollega sína úti í Evrópu: \"Í einstaka tilfellum fá bændur ekki nema um tíunda hluta af smásöluverði sauðfjárafurða. Hér er ekki verið að fjalla um kryddaða eða unna vöru.\"