Íslenski fjárstofninn gps-merktur?

Jóhannes Gísli Pálmason og Kristján Jónsson, sauðfjárbændur í Hörgárdal, hafa sett GPS staðsetningarmerki í sauðfé sitt. Um frumkvöðlastarf er að ræða hér á landi en fyrirmyndin er norsk. Rætt er við þá bændur á vef N4.

Jóhannes og Kristján eru búnir að merkja tvær ær með GPS og vita því hvar þær verður að finna fyrir göngurnar. Þeir hyggja á frekari landvinninga í þessum efnum en hvert tæki kostar 20-25 þúsund krónur auk annars kostnaðar. Þeir segja í viðtali við N4 að með auknum innkaupum og ísetningum á GPS-tækjum myndi kostnaður lækka.

Hinir hörgdælsku sauðfjárbændur láta einnig hafa eftir sér að gaman sé að sjá ferðalög kinda út frá aukinni kröfu neytenda um rekjanleika afurða. Lambakjötið smakkist eins og það smakkast af því að það lifi á villtum gróðri sem gefi ákveðið bragð.

GPS myndi einnig hjálpa til ef von væri á slæmu veðri. Gríðarlegur fjöldi sauðfjár drapst þegar fé fennti í kaf fyrir sléttum þremur árum á Norðurlandi, 10.-11. september, allt að 5.500 kindur. Kynni að skipta sköpum þegar von er á illviðri að finna kindurnar hratt og vel til að geta bjargað þeim.