Þetta kemur fram á fréttavef Morgunblaðsins en þar segir Guðjón Guðmundsson, framkvæmdarstjóri fyrirtækisins að fyrirtækið hafi eytt miklum tíma og fjármunum í markaðssetningu erlendis og náð góðum árangri í Bandaríkjunum. Hann segir bjórinn bæði bjórinn meðal annars seldan á dælu í Epcot Disney-garðinu í Flórída, en þar hafi hann komið í stað Bud Light sem er einn mest seldi bjór Bandaríkjanna.
Haft er eftir Guðjóni að strax í kjölfar samþykktar Reykjavíkurborgar hafi dreifingaraðilar haft samband. Yfirlýsingar hafi jafnvel fylgt um að allri sölu á íslenskum varningi yrði hætt vegna þessa.
Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sagði ákvörðun borgarinnar fráleidda í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudagskvöld. Hún hafi þegar skaðað viðskiptahagsmuni Íslands.
Þá sendi utanríkisráðuneytið frá sér tilkynningu í gær þess efnis að ákvörðunin væri ekki i samræmi við utanríkisstefnu Íslands.
Dagur. B. Eggertsson sagði í kvöldfréttum í gær og í Speglinumsennilega hefði verið rétt að taka fram að um vörur frá hernumdum svæðum en ekki Ísrel í heild.