Íslenskar sjúkrabörur verðlaunaðar

Íslenska sprotafyrirtækið Hallas hlaut Hallas Prowinter Start-up verðlaunin á sýningunni Prowinter 2018 í Suður-Tyrol á Ítalíu fyrir sérhannaðar sjúkrabörur.

Á sýningunni ytra er verið að kynna allan búnað fyrir vetraríþróttir sem og björgunarbúnað.  

Halla Eysteinsdóttir, eigandi Hallas hannaði vöruna frá grunni en Halla er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur mikið stundað fjallamennsku og verið í björgunarsveitum. Eftir að hún og aðrir voru við björgun og lentu í vandræðum með sjúkrabörur ákvað hún að hanna sjúkrabörur sem myndu vera „ein með öllu“ sjúkrabörur.

 Hallas sjúkrabörurnar eru sérhannaðar samanbrjótanlegar sjúkrabörur og eru einungis 4,9 kílógrömm. Þær er hægt að bera á bakinu og því komast hratt og örugglega til þess slasaða. Þær eru sérstaklega hannaðar fyrir erfiðar aðstæður til að mynda á fjöllum. Börurnar eru enn fremur gerðar úr vatnsheldum segldúk, með stífri plötu í botni, vatnsheldri yfirbreiðslu og hentugum handföngum til flutnings. Þegar hinn slasaði er kominn að sjúkraflutningafarartæki hvort sem er sjúkrabíll eða þyrla þá passa Hallas börurnar fullkomlega á mismunandi flutningstæki þeirra.

Halla segir að nú muni þurfa framleiðandi að vörunni svo að hún geti orðið ódýrari í framleiðslu en nú er og þar með hægt að senda hana um allan heim

 

Nánar má sjá hönnun Höllu hér