Konur hafa frumkvæðið í ástarsamböndum

Það er tilvalið að gera hlé á pælingum um forsetaframbjóðendur á miðvikudagskvöld kl. 21:30 því þá verður rætt um ástarsambönd íslenskra kvenna í ,,Fólki með Sirrý.”

Rósa Björk Bergþórsdóttir kynjafræðingur og Margrét Grímsdóttir para- og hjónameðferðarfræðingur ræða um nýju bókina ,,Ástarsögur íslenskra kvenna” sem eru sannar frásagnir ólíkra kvenna. Í bókinni deila íslenskar konur á öllum aldri reynslu sinni af ástarsamböndum sem sum ganga vel en önnur eru afar erfið. Sumar kvennanna koma fram undir nafni en aðrar kjósa nafnleynd.

Í þættinum segir Rósa Björk, kynjafræðingur og annar höfundur bókarinnar, að það hafi komi skemmtilega á óvart í frásögnunum hve íslenskar konur eru óhræddar við að hafa frumkvæði í ástarmálum. Þær bíða ekki aðgerðalausar eftir draumaprinsinum eða þykjast vera áhugalitlar og uppteknar, eins og ráðlagt hefur verið t.d. í bandarískri stefnumótamenningu. Þær hika ekki við að ganga á eftir þeim karlmönnum sem þær vilja og hafa óhikað frumkvæði að nánari kynnum. Bókin er að koma út hjá Bjarti Veröld um þessar mundir og munu eflaust margir íslenskir karlmenn reyna að finna sjálfa sig í frásögnunum, enda eru frásagnir kvennanna margar opinskáar og auðvelt að finna út við hvern er átt. Sumar sögurnar eru ljúfar ástarsögur með farsælan endi en aðrar sögur lýsa ofbeldi og átökum. Í ,,Fólki með Sirrý” ræðir hjóna- og parameðferðafræðingurinn Margrét Grímsdóttir vítt og breytt um ástarsambönd eins og þau birtast henni bæði í bókinni og starfinu.