Biðlistinn til að komast inn hjá offituteymi Reykjalundar er langur. Íslenska þjóðin hefur fitnað og er nú um fimmtungur Íslendinga í mikilli offitu. Hildur Thors, læknir offituteymisins á Reykjalundi, var gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld, þar sem hún ræddi um þennan heilsufarsvanda.
Eins og gefur að skilja leitar fólk með offituvanda til teymisins. „Við erum mjög sérhæft teymi, þverfaglegt teymi með margar mismunandi fagstéttir innanborðs. Þannig að við höfum sérhæft okkur svolítið í því að hjálpa þeim sem eru með mesta vandann og alvarlegast veikir af sinni offitu. Það er svona okkar markhópur,“ segir Hildur.
Aðspurð að því hve margir séu að bíða eftir því að komast að hjá offituteymi Reykjalundar segir hún: „Því miður of margir. Við náttúrulega forgangsröðum svolítið þannig að þeir sem eru allra veikastir, við látum þá ekki bíða og bíða. En að meðaltali er biðin svona níu til tíu mánuðir. Við getum ekki sinnt nema svona um 150 manns [á ári], en þegar við byrjum að sinna þeim, þá sinnum við þeim lengi. Þeir eru alveg hjá okkur í um eitt og hálft ár.“
Hildur segir að ástand fólksins sem komi til þeirra sé misjafnt en að vitað sé að mikilli offitu geti fylgt mjög alvarlegir sjúkdómar. „Margir eru komnir með mjög alvarlega sykursýki, komnir á stóran skammt af insúlíni, aðrir eru með erfiða hjarta- og æðasjúkdóma, sumir eru komnir með öndunarfærasjúkdóma, mikinn kæfisvefn og jafnvel að öndunargeta hefur minnkað. Fólk er með stoðkerfisvandamál, það er mikið álag á liði að bera þungan skrokk.“
„Svo má ekki gleyma heldur andlegu vandamálunum,“ heldur hún áfram. „Lágt sjálfsmat, fólk er búið að reyna margt, kannski mistakast oft. Fordómar í þjóðfélaginu eru miklir. Þannig að fólk er svolítið að draga sig inn í sína skel. Þunglyndi og kvíði, oft alvarleg vandamál,“ segir Hildur og bætir við að sumir séu orðnir óvinnufærir og að óvirkni margra sé í raun orðin það slæm að þeir eru hættir að taka þátt í lífinu.
Hún segir að markmið offituteymis Reykjalundar sé að vekja áhugahvöt fólks sem glímir við mikinn offituvanda til þess að vilja gera eitthvað fyrir sig sjálft. Aðferðir teymisins eru atferlismiðaðar. „Við hjálpum fólki að breyta venjunum sínum, og til þess að það geti breytt venjunum sínum þarf að vinna til dæmis með andlega líðan og efla sjálfsmat og þess háttar hluti. Svo hjálpum við fólki að verða virkara í daglegu lífinu; hreyfa sig meira, fara meira út og vera meðal fólks.“
Árangurinn hefur verið góður. „Við lítum aðallega á árangur til bættrar heilsu. Sjúkraþjálfarinn í teyminu okkar tók saman rannsókn fyrir nokkrum árum síðan og þyngdartapið er svipað eins og í öðrum meðferðum sem byggja svolítið á okkar meðferðum, það er svona fimm til tíu prósent þyngdartap. En þó að maður léttist ekki meira, ef maður nær að viðhalda þessu þyngdartapi þá batnar heilsan. Það var það sem kom fram í þessari rannsókn, að fólk er virkara og því líður betur. Lífsgæðin eru meiri.“
Viðtalið við Hildi í heild sinni er að finna hér: