Mjólkin kemur út í enskri þýðingu

Pökkun á mjólk í endurhönnuðum umbúðum hefst á næstu dögum hjá MS. Nýju umbúðirnar eru með enska þýðingu á heiti hverrar mjólkurtegundar í minna letri undir aðalmerkingu fernanna.

Nýmjólkin heitir nú Whole Milk á ensku, Léttmjólkin Semi-Skimmed Milk og Undanrennan Skimmed Milk.

Umbúðahönnunin er afrakstur af vinnu auglýsingastofunnar Ennemm með markaðsdeild MS og að sögn Guðnýjar Steinsdóttur markaðsstjóra var áhersla á að halda í sömu grunnliti og áður enda skipta þeir miklu máli þegar neytendur kaupa mjólkina. Á umbúðunum er texti um vítamín og steinefni sem mjólkin inniheldur auk þess sem áhersla er á að benda á skemmtileg neyslutilefni með mjólkinni.

Fernurnar eru áfram þær sömu og áður og innihalda 66% minna kolefnisfótspor en mjólkurfernurnar gerðu áður (eins og kynnt var í maí 2017). Miklu máli skiptir að skila fernunum til endurvinnslu og hvetur MS neytendur til þess.