Greiningardeild Ríkislögreglustjóra hefur gefið út matsskýrslu um skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Segir að erlendir glæpamenn með umsvif hér á landi komi einkum frá Austur-Evrópu og Asíu. Viðskipti með fíkniefni eru áberandi brotaflokkur.
Með skipulögðum brotasamtökum er átt við félagsskap þriggja eða fleiri manna sem hefur það að meginmarkmiði, beint eða óbeint í ávinningsskyni, að fremja með skipulegum hætti refsiverðan verknað sem varðar að minnsta kosti 4 ára fangelsi, eða þegar verulegur þáttur í starfseminni felst í því að fremja slíkan verknað.
„Enginn vafi er á því að á Íslandi starfa hópar sem falla undir þessa lýsingu laga á skipulögðum brotasamtökum. Í því efni er gerður greinarmunur á innlendum og erlendum afbrotahópum. Með hugtakinu „erlendir hópar“ er átt við þá hópa afbrotamanna sem rætur eiga að rekja til erlendra ríkja, þó svo viðkomandi kunni í einhverjum tilvikum að vera íslenskir ríkisborgarar, og eru iðulega í tengslum við skipulagða glæpahópa, „mafíur“, í upprunalandinu. Hér á landi eru einkum starfandi hópar sem eiga rætur að rekja til Mið- og Austur-Evrópu og Austur-Asíu,“ segir í skýrslunni.
Einnig er vikið að innlendum glæpahringjum en segir um samanburð á þessum tveimur hópum að tiltækar upplýsingar bendi til þess að erlendir hópar séu um flest betur skipulagðir en innlendir. Starfsemi útlenskra mafíuhópa sé síður háð tilviljunum. Meiri „atvinnumennska“ einkenni hana t.a.m. hvað verkaskiptingu varðar.
Lesa má skýrsluna hér.