Gengisvísitala íslensku krónunnar hefur sveiflast síðustu vikur. Því hærri sem hún er því veikari er krónan. Þann fyrsta janúar var gengisvísitalan tæplega 163 en fór á ferð í lok sumars. Í dag var gengisvísitalan orðin 177. Það er þó styrking frá því fyrir helgi en um miðja síðustu viku var gengisvísitalan orðin 180.
Ásdís telur stöðu krónunnar mjög viðkvæma. „Við erum að sjá að það er að hægja verulega á vexti hagkerfisins, við erum þá líka að sjá að það er auðvitað að hægja mjög á fjölgun ferðamanna til landsins. Í öðru lagi þá hafa lífeyrissjóðir sem og aðrir innlendir fjárfestar í auknum mæli verið að fjárfesta erlendis en á sama tíma er hins vegar Seðlabankinn með höft á innflæði fjármagns frá erlendum aðilum þannig það er kannski ekki það innflæði sem til þarf til að mæta þessu útflæði og það um leið ýkir þessi áhrif að einhverju leyti.“
251 félag gerir upp í erlendri mynt
Krónan hefur ekki verið veikari í rúm tvö ár. Í dag kostar Bandaríkjadalur 117 krónur og pundið 153 krónur. Evran kostar 135 krónur. Ljóst er að óstöðugleiki krónunnar hefur áhrif á atvinnulífið en þó ekki allt, þar sem 251 félag hefur heimild til að halda bókhald og hafa ársreikning í erlendum gjaldmiðli. Flest þessara félaga gera upp í evrum eða um 133 en 97 félög gera upp í dollurum. 82 félög halda úti starfsemi eignarhaldsfélaga. Um 40 af 251 félagi tengjast sjávarútvegi, 10 félög eru í hugbúnaðargerð, 5 í álframleiðslu og 5 eru í farþegaflutningum
Nánar hér á ruv.is