Hnefaleikakonan Valgerður Guðsteinsdóttir náði ekki að tryggja sér heimsmeistarabeltið í léttvigtarflokki þegar hún atti kappi við hina norsku kempuna Katarinu Thanderz í Osló í gærkvöld.
Þjálfari Valgerðar, Vilhjálmur Valgeir Hernandez, sagði í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöld að þótt þetta hafi vissulega verið vonbrigði hafi Valgerður staðið sig feikivel í bardaganum: \"Hún hafði ekki sigur en hún stóð allar átta loturnar og þetta var í raun alveg frábær frammistaða hjá henni miðað við allar aðstæður.“
Vilhjálmur bendir á í viðtalinu að Valgerður hafi aðeins fengið aðeins átta daga fyrirvara. Thanderz, sem varði heimsmeistaratitil sinn í kvöld, átti að keppa við Toussy L\Hadji frá Frakklandi