Umfang deilihagkerfisins á Íslandi er mest í heimi, samkvæmt nýjum mælikvarða frá sænsku hugveitunni Timbro. Hugveitan nefnir sérstaklega þátt ferðaþjónustunnar í þessu samhengi og segir hana hafa verið grundvöll fyrir vöxt deilihagkerfisins hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Timbro.
Kjarninn birtir grein um þetta og þar segir m.a. að mælikvarðinn, Timbro Sharing Economy Index (TSEI), sé mældur í alls 213 löndum og byggi á rannsókn á 4500 fyrirtækjum. Þá eru 286 fyrirtækjanna skilgreind sem deilihagkerfisfyrirtæki út frá skilgreiningu hugveitunnar. Stærst þeirra var Airbnb, með um það bil 1,5 milljón virkra gestgjafa. Löndin voru svo röðuð upp eftir TSEI-mælikvarðanum, en þar var Ísland langefst, segir í fréttinni.
Smáríki voru öll áberandi í efstu sætum listans, en á eftir Íslandi fylgdu Turks-og Caicoseyjar, Malta, Svartfjallaland og Nýja-Sjáland. Meðal iðnríkja sem skoruðu lægst á listanum voru svo Lúxemborg og Slóvakía.
Frétt Kjarnans er hér.