Sjónvarpsþátturinn Atrinnulífið fjallar í kvöld um stærsta verkfræðifyrirtæki landsins og alla þá fjölþættu starfsemi sem sérfræðingar hennar á öllum sviðum fræðanna inna af hendi um allt land.
Í Atvinnulífinu eru íslensk fyrirtæki sótt heim og saga þeirra og sérstaða kynnt fyrir almenningi heima í stofu sem sjaldnast eða aldrei hefur tækifæri til að sjá starfsemi ólíkra vinnustaða í návígi. Í kvöld verður fyrri þátturinn af tveimur sýndur um yfirgripsmikla starfsemi Eflu á sviði verkfræði og ráðgjafar, en Efla hefur fjölbreytta umsjón með mannvirkjagerð á ýmsum sviðum, annast hönnun alls konar híbýla, brúa og jarðganga og hefur flutt þekkingu sína og hugvit á sviði raforku til útlanda, en þar hefur komið í ljós að íslensk verktækni og verkfræði er enginn eftirbátur þess sem best gerist í greininni um allan heim.
Helsti viðmælandi þáttarins er Guðmundur Þorbjörnsson framkvæmdastjóri Eflu sem kynnir fyrir Sigurði K. Kolbeinssyni umsjármanni þáttarins allt það litróf verktækni sem er að finna á þessum lifgandi og skapandi vinnustað sem Efla er.
Atvinnulífið er frumsýnt klukkan 21.00 í kvöld.