Íslensk sundlaug er hús ársins í noregi

Bygging teiknuð hjá Arkís á Íslandi og hönnuð af Verkís, Sundhöllin Holmen í Asker í Noregi, var í gær valin Bygging ársins 2017 af Samtökum atvinnulífsins í Noregi (NHO).

Verkís er jafnframt heildarráðgjafi verkefnisins og því var stýrt af OP-Verkis í Osló, að því kemur fram í frétt á vefsíðu Verkís.

Sundhöllin var opnuð síðastliðið sumar og hefur vakið mikla athygli. Mikill metnaður var lagður í verkefnið af hálfu Asker sem er byggjandi að þessu verkefni. Lagði bærinn til eina af eftirsóknarverðustu lóðunum við ströndina sem enn var til umráða og nýtur sundhöllin nálægðar við ströndina í beinum tengslum við Osló fjörðinn.

Sundhöllin er ein orkuhagkvæmasta sundhöll Noregs. Hátt í helmingur orkunnar sem notuð er við rekstur sundhallarinnar er aflað á lóð hennar. Til þess eru notaðar varmadælur sem sækja orku úr 15 um 220 m djúpum borholum á lóðinni, sólarrafhlöður og sólarfangarar. Sundhöllin var valin eitt af svokölluðum fimmtíu fyrirmyndarverkefnum FutureBuilt í Noregi. Verkefnin eiga að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 50% innan sviða umferðar-, orku- og efnisnotkunar.

Fleiri myndir af sundlauginni í Holmen á vef Arkís.