"Pabba grunaði það alltaf, en hann gat aldrei fengið það staðfest að njósnað væri um hann - og því síður hafði hann hugmynd um að búið væri að banna útgáfu bóka hans í öllum hinum enskumælandi heimi, eins og síðar kom á daginn," sagði Guðný Halldórsdóttir í þættinum Mannamáli á Hringbraut í vikunni. Þar greindi hún ítarlega frá því hvernig stjórnvöld hefðu hlerað föður sinn og gefið amerískum yfirvöldum allar upplýsingar um hann eftir að Atómstöðin kom út seint á sjöunda áratug siðustu aldar.
"Væri þetta ekki kallað landráð í dag," spurði Guðný í þættinum. "Hvernig myndi fólki líka það í dag ef allir söngvar Bjarkar væru bannaðir í ensku mælandi heimi," spurði Guðný í þættinum og kvað grimma, óvægna og skipulagða aðförina að föður sínum á nefndum tíma hafa verið að undirlagi Bjarna Benediktssyni þáverandi valdhafa.
Hún segir að bækur föður síns hafi verið fjarlægðar úr öllum bókasöfnum hins ensku mælandi heims eftir að íslensk stjórnvöld hefðu klagað hann til leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA og eftir það hafi hann verið þurrkaður út á því málsvæði.
Þáttinn með Guðnýju Halldórsdóttur Laxness má sjá í heild sinni á hringbraut.is, svo og klippur úr homnum á forsíðu vefjarins.