Íslensk spilling þarf að vera gagnsæ

Karl Ágúst Úlfsson átti ekki í erfiðleikum með að gera upp vikuna í upphafi þáttar síns, Helginni á laugardagskvöld, enda var þetta vikan þegar við komumst enn og aftur í heimsfréttinar og nú streyma erlendir ferðamenn til Íslands einkum til að berja augum tvö ný náttúrufyrirbæri - annars vegar Skaftárhlaupið og hins vegar biðröðina við Dunkin Donuts.

Og svo gaf hann í: \"Þetta var vikan þegar Illugi Gunnarsson upplýsti okkur um tengsl sín við fyrirtækið Orku Energy. Illugi sagði að það hefðu verið mistök af sinnu hálfu að segja ekki satt og rétt frá tengslum sínum við Orku Energy strax í upphafi, en lýsti því yfir að hann stæði við þau mistök sín og sagðist ekki ætla að segja af sér, en fyrir því væru bæði persónulegar og þjóðlegar ástæður. Persónulega ástæðan væru sú að hann vildi ekki segja af sér, en sú þjóðlega að svoleiðis gerðu ekki stjórnmálamenn á Íslandi fyrr en búið væri að standa þá opinberlega að lygum að minnsta kosti fimm sinnum og ná mynd af þeim þar sem þeir væru að þiggja mútur.\"

Leikstjórinn kunni veit sínu viti: \"Illugi þarf ekki að hafa áhyggjur. Íslendingar hafa aldrei gert þá kröfu að spillingin verði afnumin hér á landi. Bara að hún verði gagnsæ. Erum við ekki seint og snemma að raula gamla húsganginn:

MÉR FINNST SPILLINGIN GÓÐ

LA LA LA LA LA O Ó.

MÉR FINNST SPILLINGIN GÓÐ

LA LA LA LA LA O Ó.

Og aðbúnaður svína á svínabúum á Íslandi er algjörlega óviðunandi, er okkur sagt. Það er alltof þröngt um svínin og þau fá alls ófullnægjandi næringu. Hvert svín mun fá skammtað sem nemur hálfri kexköku og þremur rúsínum á dag. Nei, það getur ekki verið. Nei, fyrirgefiði, þetta á við um eldri borgara á Íslandi. Þeir hafa ekki efni á nema hálfri kexköku og þremur rúsínum á dag þegar þeir eru búnir að borga húsaleigu. Svínin fá nóg að éta. Dýraverndunarsamtök hafa sent frá sér harðorð mótmæli, þar sem segir meðal annars að það sé engu líkara en svínabændur séu að rugla saman svínum og eldri borgurum. Almenningur á Íslandi hefur brugðist hart við þessum fréttum og ætlar að mótmæla svínslegri meðferð á svínum með því að hætta að kaupa beikon, en lifa eingöngu á Dunkin Donuts næstu þrjá mánuðina.

Já, og húsaleigumarkaðurinn á Íslandi er með allra flóknasta móti þessa dagana, þar sem stór hluti almennings hefur ekki lengur efni á að búa í húsnæði vegna hækkandi leigu. Leigusalar eru nú farnir að rukka sérstaklega fyrir myglusvepp ef hann er til staðar og í mörgum tilfellum er myglusveppurinn eina gæludýrið sem leyfilegt er að hafa í íbúðinni.

Og þetta var líka vikan þegar við vorum upplýst um að myglusveppur væri í óðaönn að leggja undir sig velferðarráðuneytið. Það er kannski táknrænt að íslenska velferðarkerfið ætli að verða myglusvepp að bráð. Nú standa yfir aðgerðir til að losa ráðuneytið við sveppinn, en ég vara við of mikilli bjartsýni: Hann er búinn að koma sér fyrir í stjórnkerfinu - þetta er íslenskur sveppur - og ef ég þekki hann rétt, þá neitar hann að segja af sér.\"

Þátt Karls, að hluta eða í heild má sjá hér á hringbraut.is.