Íslensk nýsköpun í útrás

Í þættinum Fólk og frumkvæði, nýsköpun í útrás, ræðir Sölvi Tryggvason meðal annars við talsmenn Bioeffect og Ankra, sem báðir hafa verið að hasla sér völl erlendis. 

Bioeffect er dótturfyrirtæki ORF Líftækni, en nafninu var breytt úr Sif Cosmetics fyrr á þessu ári. Vörur Bioeffect voru fyrst kynntar erlendis í lok árs 2010, en teljast nú þegar eitt þekktasta íslenska vörumerkið á alþjóðlegum neytendamarkaði. Sérstaða þeirra er framleiðsluaðferðin, en vörurnar eru framleiddar með erfðatækni í byggi í gróðurhúsi ORF Líftækni í Grindavík, eða hinum svokallaða EGF frumuvaka. Fyrirtækið Ankra er yngra en það var stofnað árið 2013 og er staðsett í Sjávarklasanum. Ankra framleiðir hágæðahúðvörur og fæðubótaefni og notar til þess einstök virk efni úr hafinu. Til að mynda er fæðubótarefnið Amino Collagen framleitt úr fiskroði.

Tækifærin, áskoranirnar og árangurssögurnar eru umfjöllunarefni þáttarins í kvöld, en hann hefst klukkan 21.30 á Hringbraut.