Vaxtahraði nautgripa á Íslandi er langtum mun hægari en í samkeppnislöndum Íslands, að því er fram kom í þættinum Atvinnulífið á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld. Miðað við eðlilega fóðurgjöf vaxa sláturskeppnur á Íslandi um 700-800 g á dag meðan vöxturinn er 1,5-2 kg á dag í samkeppnislöndum Íslands.
Þarna er komin ein helsta ástæðan fyrir því að íslenska landbúnaðarkerfið hefur ekki undan spurn eftir nautakjöti hér á landi, en sem kunnugt er nýtur það hárra verndartolla á móts við innfluttar afurðir.
Í þættinum Atvinnulífið í gærkvöld var tekið hús á forráðamönnum Jötunn véla sem hafa þjónað íslenskum landbúnaði um árabil, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Finnbogi Magnússon gjörþekkir íslenskan landbúnað.
Þáttinn er hægt að nálgast undir sjónvarpsflipanum á forsíðunni á hringbraut.is, svo og styttri klippur úr þættinum.