Enda þótt á annað hundrað landvarða séu sumarráðnir til að gæta þjóðgarða og annarra svæða dugar það hvergi til. Helgustaðanáman er einn fárra fundarstaða silfurbergs í Evrópu. Náman er friðað náttúruvætti.
Ari Trausti Guðmundsson þingmaður skrifa pistil í Fréttablaðinu um illa umgengni um námuna og brottnám sýna þaðan. Ari Trausti segir að landvörður nær ekki að koma þangað nema örfáum sinnum á ári. Hann segir að sú afleita staða sé aðalatriði málsins. Ari Trausti kallar eftir menntuðum leiðsögumönnum sem allir væru með löggildingu og lögregluvaldi.
Nánar www.fretabladid.is