Lögregluyfyrirvöld í Feneyjum hafa látið forráðamenn íslenska framlagsins til Feneyjartvíeyringsins í ár vita af því formlega að þau líti á listaverk Íslands sem ógn við borgina og borgarbúa. Verkið er moska innan í gamalli kirkju.
Að sögn íslensku forkólfanna kemur þessi tilkynning nokkuð á óvart enda undirbúningur sýningarinnar búinn að standa lengi yfir og þarlend stjórnvöld menningarmála vissu fyrir margt löngu hvert framlag Íslands yrði og hvernig því yrði háttað. Umrætt verk er eftir listamanninn Christoph Buchel og myndar mosku sem staðsett er inni í gamalli kirkju í Feneyjum sem hætt er að nota. Verkið er unnið í samráði við trúfélag múslima á Íslandi og á Ítalíu.
Þetta mun vera fyrsta moskan sem "reist" er í Feneyjum, enda þótt samskipti Feneyinga og Arabaheimsins hafi verið afar mikil og báðum hagkvæm um langa hríð á fyrri öldum. Verkið verður opið almenningi fram á næstu helgi.
Ekki er vitað til þess að almenningur í borginni hafi sett sig upp á móti verkinu, en lögreglan telur greinilega að verkið geti verið skotmark og þannig ógnað öryggi borgarinnar.
Ekki stendur til að taka verkið niður að Íslands hálfu að svo stöddu.
Feneyjartvíæringurinn er meðal kunnustu og virtustu listsýninga í heimi og þykir mikill heiður að sýna á listahátíðinni.