Norskir bankar bjóða upp á sérstök lán til ungs fólks sem er að koma sér þaki undir höfuðið en þau eru á kjörum sem eru ekki einu sinni fáheyrð á Íslandi, heldur með öllu óþekkt. Þannig er heildargreiðsla af 24 milljóna króna norsku láni til 25 ára um 34,5 milljónir króna þegar upp er staðið, en sambærilegt lán á Íslandi, tekið hjá Íbúðalánasjóði til 40 ára kostar lántakandann 120 milljónir að lánstímanum liðnum. Munurinn er vel ríflega þrefaldur.
Þetta kemur fram á fréttavefnum stundin.is í dag, en ítarlega er fjallað um þessu mismunandi lánakjör sem fólki á Íslandi og í Noregi bjóðast. Á vefnum segir að að hátt fasteignaverð valdi því að ungt fólk á Íslandi eigi erfitt með að komast út af leigumarkaðinum og í eigin íbúð. Svipað vandamál hafi þekkst í mörgum kommúnum í Noregi. Þar bjóði yfirvöld þó upp á svokölluð startlán, sem séu í boði fyrir fólk sem eigi erfitt með að safna fyrir útborgun í íbúð, þar sem slík upphæð geti numið mörgum milljónum. Segir vefurinn að Norðmenn fari þessa leið til að auðvelda fólki að komast í eigið húsnæði og að búa við húsnæðisöryggi.