Íslensk kortanúmer seld á djúpvefnum

Í nýlegri úttekt Landsbankans  á netglæpum kemur fram að íslensk debet- og kreditkortanúmer eru seld á hinum svokallaða djúpvef fyrir um 850 – 6.000 krónur stykkið. Í lægri verðflokkum fæst einungis kortanúmer og CVC númer en í hærri verðflokkum fylgir PIN-númer korta og kennitala korthafa.

Djúpvef má líkja við undirheima internetsins, eða nokkurs konar „annað internet“ sem við hin, hefðbundið heiðvirt fólk sjáum ekki, finnum ekki og notum ekki. Með einbeittum vilja má þó komast þangað inn.

Hákon Lennart Aakerlund, yfirmaður netöryggismála hjá Landsbankanum og Hermann Þ. Snorrason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, voru gestir Lindu Blöndal í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöldi. Þar ræddu þeir ýmsar hliðar netglæpa, en Landsbankinn birti nýverið úttekt á netglæpum á árinu 2018.

Auðvelt að fá fólk til að gefa upp kortanúmer á Facebook

Netþrjótar eru gjarnir á að fremja árásir sínar í gegnum öpp, sérstaklega lífsstílsöpp, en sú þróun hefur átt sér stað undanfarin misseri að æ fleiri glæpamenn hafa fært sig yfir á samfélagsmiðlana til að ná betur athygli fólks og veiða það í gildrur.

„Þeir nota samfélagsmiðlana til að fylgjast með“, segir Hákon.

Netsvikum á samfélagsmiðlum hefur fjölgað um 70 prósent á aðeins nokkrum mánuðum. Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu RSA, öryggisfyrirtækis sem er samstarfsaðili Landsbankans. Fjölmörg dæmi sýni hve auðvelt það er að fá fólk á Facebook til að gefa upp kortanúmer, CVC-númer, aðgangsupplýsingar fyrir netbanka, leyninúmer bankareikninga o.s.frv. Í skýrslunni er m.a. gagnrýnt hve auðvelt það er fyrir óprúttinn aðila að komast í lokaða Facebook-hópa.

Samkvæmt gögnum frá Facebook sem er vísað til í skýrslu RSA fjalla vinsælustu orð og orðasambönd sem eru notuð í Facebook-færslum tengdum fjársvikum á netinu um greiðslukort og kortaþjónustur.

\"\"

Hægt er að sjá viðtalið við Hákon og Hermann í heild sinni hér: