Íslensk kona hefur verið ákærð fyrir vörslu heróíns og peningaþvætti í Liverpool í Englandi. Konan var handtekin í síðasta mánuði eftir húsleit lögreglu í íbúð sem hún er sögð hafa búið í.
DV greindi fyrst frá málinu fyrr í dag og gefur eftir breskum fjölmiðli. Í íbúðinni fundust þrettán kíló af efni sem talið er vera heróín. Þá fundust einnig milljón pund í reiðufé, jafnvirði rúmlega 200 milljóna íslenskra króna. Konan sem er 29 ára var handtekin ásamt þremur öðrum mönnum á svipuðum aldri. Lögreglan eer sögð enn vera að leita að fimmta manninum sem er talinn tengjast málinu.
Fjórmenningarnir hafa allir verið ákærðir fyrir vörslu heróíns og peningaþvætti.
Myndin sem fylgir fréttinni er tekin í íbúðinni sem íslenska konan er sögð hafa búið í og sýnir peningana sem þar fundust.