Íslensk húsnæðislán mjög óhagstæð

Húsnæðislánin eru rædd í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld. Þar segja fasteignasalarnir Ásdís Valsdóttir og Guðrún Antonsdóttir íslensk húsnæðislán alltof óhagstæð.

Hvorugar segjast þó hafa trú á að þau muni breytast, nema bankakerfinu verði breytt í heild sinni. Nú séu þrír stórir bankar sem allir eru eins og allir það hagnaðardrifnir að litlar líkur séu á að vextir verði lækkaðir.

Ásdís og Guðrún segjast hvorugar skilja þá stefnu seðlabankastjóra sem verið hefur varðandi stýrivaxtahækkanir og segja verðtryggð húsnæðislán til 40 ára vera \"dauði.\" Því lengri sem þau eru, því óhagstæðari eru þau. Þess vegna taka flestir styttri verðtryggð lán í dag, sem oft virðist betri kostur þar sem óverðtryggð lán séu með svo háa vexti.

Í þætti kvöldsins er farið yfir árið á fasteignamarkaði og verkföllin þá meðal annars rifjuð upp. Þau höfðu gífurleg áhrif á fasteignakaupendur og seljendur og það sé rétt nú undir árslok, sem skjalabunkarnir sem söfnuðust upp hjá sýslumanni séu farnir að minnka.

Ásdís og Guðrún segjast þó bjartsýnar á árið 2016 í heild sinni. Búast megi við breytingum á greiðslumati, byggingareglugerð og fleira sem liðka muni fyrir fasteignakaupum margra, til að mynda þeirra sem hafa verið fastir á leigumarkaði.

Þáttinn má sjá hér á vef Hringbrautar.