Íslensk hönnun að verða æ vinsælli

Hin vinsæla sýning Handverk og hönnun hófst í Ráðhúsinu síðdegis í dag, fimmtudag. Þar sýnir handverksfólk og hönnuðir víða að af landinu verk sín, ræða við gesti og selja vörur sínar. 


Í þættinum Lífsins list á Hringbraut í gærkvöld kl. 21:30 heilsaði Sirrý upp á handverksfólk sem var að undirbúa sýninguna. Mátti þar sjá skó, töskur, tískufatnað, barnafatnað, tölur úr roði, muni úr hrútshornum og margt fleira skemmtilegt, en að öllu samanlögðu er gríðarleg gróska í íslenskri hönnun og æ fleiri landsmenn reyna á sköpunarkraftinn sem býr í brjósti þeirra. Það helst auðvitað í hendur við allar þær glæsilegu móttökur sem íslenskir listgripir og nytjahlutir hafa fengið eftir því sem erlendum ferðamönnum fjölgar hér á landi.   


Sýningin er öllum opin, aðgangur ókeypis og stendur hún yfir í Ráðhúsinu til kl. 18 á mánudag.