Rauði krossinn á Íslandi hefur þegar sent einn hjálparstarfsmann á vettvang til að starfa við tjaldsjúkrahús sem Rauði krossinn í Noregi mun setja upp í Nepal. Jón Brynjar Birgisson, sviðstjóri Neyðarmiðstöðvar Rauða krossins, á von á að fleiri hjálparstarfsmenn fari á næstu dögum og vikum til að starfa við sjúkrahúsið. Fjallað verður um starf Rauða krossins í kjölfar jarpskjálftans í Nepal í Heimsljósi sem sýnt er í kvöld, en þar verður Jón Brynjar á meðal gesta og mun lýsa því nákvæmlega hvernig meenn bera sig að við svona aðstæður.
Áhersla er lögð á áfallahjálp og sálrænan stuðning strax í upphafi, segir Elín Jónasdóttir sálfræðingur sem starfað hefur víða við náttúruhamfarir fyrir Rauða krossinn, en hún er einnig gestur þáttarins. Megináherslan núna sé að bjarga mannslífum í rústunum, og sjá fórnarlömbum skjálftans fyrir fæðu og vatni og koma þeim í skjól. Hinsvegar þurfi strax að huga að líðan fólksins og sinna börnunum sem fyrst með sálrænum stuðningi og áfallahjálp. Ógnin af völdum jarðskjálfta sé hvarvetna hin sama þó álagið sé að sjálfsögðu enn meira þar sem mannskæðar hamfarir verða en í þeim jarðskjálftum sem Íslendingar hafa upplifað síðustu ár.
Heimsljós er á dagskrá klukkan 20.45 í kvöld á Hringbraut og er í umsjá Sólveigar Ólafsdóttur.