RÚV greinir frá þessu í dag og segir að Um 450 manns bíði þess að hefja afplánun í yfirfullum fangelsum landsins. Þessi langi biðlisti geri það að verkum að Fangelsismálastofnun þurfi að forgangsraða þannig að þeir sem hljóti tveggja ára dóm eða meira hefji fyrst afplánun. Í frétt miðilsins kemur fram að maðurinn, sem sérsveit ríkislögreglustjóra yfirbugaði eftir umsátur á Völlunum í Hafnarfirði, hefur hlotið þrettán dóma, nú síðast í mars þegar hann var dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir að hóta lögreglumönnum lífláti. Þótt nærri fimm mánuðir séu liðnir frá dómnum hóf maðurinn ekki afplánun fyrr en í gær vegna plássleysis. Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir algengt að menn haldi áfram að brjóta af sér á meðan þeir bíða þess að hefja afplánun.
\"Við höfum heimild til að taka mann inn samkvæmt lögunum þegar menn eru virkir í brotum og auðvitað á það að virka þannig og það virkaði þannig til 2006 að ef menn voru virkir í brotum, þá var þeim kippt inn eins og skot og það er auðvitað líka ódýrast fyrir samfélagið allt saman. Í dag er það bara ekki hægt. Ef þú ert með 150 pláss og 160 manns í þeim plássum þá er það bara ekki hægt. Það segir sig sjálft. Það vita það allir sem koma nálægt þessum málaflokki og eru búnir að vita það lengi. allir stjórnmálaflokkar og allar mögulegar og ómögulegar nefndir sem ég hef mætt fyrir. Þetta er bara svona,“ segir Páll við RÚV.
Páll segir að í reynd séu bara alvöru kanónur í íslenskum fangelsum í dag, aðrir komist ekki að: \"Maður með 10 mánaða dóm er bara ekki alvöru kanóna á þann mælikvarða, ekki fyrr en hann hegðar sér svona,“ segir Páll og telur annars verklagsreglur vera mjög skýrar hjá stofnuninni: \"En þegar lögreglan kallar á hjálp þá að sjálfsögðu gerum viið það ef við getum. En eins og ég segi, þú bara treður ákveðið mörgum mörgum inn. Ég kem bara fimm mönnum inn í fjölskyldubílinn minn, annað er ólöglegt, þetta er nákvæmlega eins með vistun frelsissvipts fólks,“ segir Páll í fréttinni.