Íslensk börn eru í aðalhlutverki í nýrri auglýsingu frá Microsoft þar nýja Windows 10 stýrikerfið er kynnt. Í auglýsingunni má meðal annars sjá íslensku börnin uppi á jökli, klappa hesti, veiða fisk og róla. „Þetta var mikil vinna en skemmtileg,“ segir framleiðandi hjá True North.
Tökurnar fóru fram á tveimur dögum í júní á Vatnajökli, í Mosfellsdal og í Reykjavík. „Stór ástæða fyrir því að ákveðið var að taka upp hluta auglýsingarinnar á Íslandi var sú að verið var að leita að snjó og ósnortinni náttúru,“ segir Árni Páll Hansson, hjá True North sem var framleiðandi íslenska hluta verkefnisins.
Börnin eru á aldrinum 10-24 mánaða en í auglýsingunni má einnig sjá bregða fyrir börnum frá Marokkó, Taílandi, Englandi og Bandaríkjunum. Íslensku börnin fóru ekki í prufur heldur voru valin út frá ljósmyndum en hátt í þrjátíu manns komu hingað til lands til að taka upp auglýsinguna, meðal annars starfsfólk frá Microsoft.
Í auglýsingunni má sjá börnin í íslenskum aðstæðum á meðan þulur segir frá því að þau muni aldrei þurfa að muna lykilorð; þau alist upp við að alla skjái eigi að snerta og þau muni geta gert fjölmargt sem foreldra þeirra gátu aldrei ímyndað sér að yrði mögulegt.
Windows 10 stýrikerfið verður fáanlegt eftir eina viku, eða þann 29. júlí næstkomandi. Það verður síðasta útgáfa stýrikerfisins þar sem það verður framvegis uppfært reglulega.
Auglýsinguna og íslensku börnin má sjá hér.