Tvenn íslensk hjón og börn þeirra, sem eru með íslenskan ríkisborgararétt, eru stödd í Kabúl í Afganistan. Mikil ringulreið er nú í landinu nú þegar Talibanar eru að taka yfir og er flugvöllurinn í Kabúl eina vonin til að komast úr landinu.
Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að utanríkisþjónustan sé í beinum samskiptum við fólkið, fylgist grannt með framvindunni og veitir aðstoð eins og kostur er.
Fjöldi fólks bíður nú á flugvellinum í Kabúl til að reyna að flýja ógnarstjórn Talibana eins og sjá má á þessari mynd AFP frá flugvellinum í morgun:

Borgaraþjónustan á í samskiptum við aðrar borgaraþjónustustofnanir á Norðurlöndum um möguleika á að fjölskyldurnar komist úr landi ásamt öðrum norrænum borgurum.
Utanríkisþjónustan segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar að sinni.