Íslendingurinn fundinn á sikiley

\"Það er okkur mikill léttir að segja frá því að samstarfsmaður okkar er fundinn og er við góða heilsu,“ segir fréttatilkynningu frá norsku strandgæslunni í kvöld eftir nokkurra daga leit að íslenskum skipverja um borð í norsku skipi sem lá í höfn á Sikliley.
 
Benjamín Ólafsson skipsmaður á norska björgunarskipinu Siem Pilot, fannst í gær en hans hafði verið saknað síðan á aðfaranótt mánudags. Frá þessu er greint á vef Verdens Gang í gærkvöld. Þar koma fram þakkir til allra þeirra sem aðstoðuðu við leitina að Benjamín. Greint var frá því í íslenskum miðlum í gær að Benjamíns væri leitað um alla Cataníu, sem er ein helsta hafnarborg á Sikiley.


Axel Due hjá norsku rannsóknarlögreglunni segir í samtali við VG að Benjamín hafi farið í læknisskoðum um borð í skipinu í kvöld og að hann muni snúa heim til Noregs á næstu dögum ásamt fjölskyldu sinni. Benjamín er búsettur í Haugasundi og er 23 ára gamall.

Due vildi ekki tjá sig um hvar eða við hvaða aðstæður Benjamín fannst.