Íslendingurinn á sikiley enn ófundinn

23ja ára íslensks sjómanns af skipinu Siem Pilot er enn leitað á Sikiley, en skip hans liggur þar við bryggju í bænum Catania. Ekkert hefur sést til hans frá því hann fór frá borði klukkan hálf fjögur aðfararnótt mánudags.

Maðurinn heitir Benjamín Ólafsson, en leit að honum hófst að nýju í birtingu í morgun, á landi, sjó og úr lofti. Fjölskylda Benjamíns frá Íslandi, norskur prestur og fulltrúi útgerðarinnar er nú komin út til Sikileyjar til að hjálpa til við leitina. 

Áhöfn björgunarskipsins tekur þátt í leitinni, sem þó er á forræði ítölsku lögreglunnar. Skipið átti að halda úr höfn í gær til leitar- og björgunarstarfa á Miðjarðarhafinu á vegum evrópsku landamærastofnunarinnar, Frontex, en brottför hefur verið frestað um óákveðinn tíma. 

Ida Dahl-Nilssen, upplýsingafulltrúi hjá norsku lögreglunni, staðfesti í samtali við fréttastofu í gærkvöld að maðurinn sé íslenskur. Hann er 23 ára gamall, og búsettur í Haugasundi. Samstarfsmenn hans um borð hafa hengt upp plaköt með myndum af honum og nafni hans um alla Cataniuborg.