Atli Örvarsson kvikmyndatónskáld hefur lokið gerð tónlistar við arabíska teiknimynd, Bilal. Myndin er frá Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hún fjallar að nokkru leyti um trúarbrögð. Hefur Atli sagt í viðtali við Hringbraut að hann hafi hrifist af boðskap myndarinnar á tímum haturs og fordóma. Þess vegna hafi hann sagt já þegar leitað var til hans, en eitthvað var um að Hollywoodleikarar hættu við leik í myndinni vegna ástandsins sem stundum er tengt trú og hryðjuverkum.
Tónlist Atla við Bilal mun koma út einhvern tíma á næsta ári, um það leyti sem myndin fer í almennar sýningar. Atli, sem er nýfluttur aftur til Íslands eftir að hann skóp sér sess í Hollywood sem eitt besta kvikmyndatósnkáld heims, var ásamt eiginkonu viðstaddur frumsýningu á Bilal í Katar í vikunni.
Atli hefur einnig tekið þátt í innlendri kvikmyndastarfsemi, hann samdi tónlistina við verðlaunamyndina Hrúta og er höfundur tónlistar í Chicaco Fire sjónvarpsseríunni sem sýnd er hér á landi svo fátt eitt sé nefnt.
Hann býr nú á Akureyri með Önnu konu sinni og tveimur börnum og stjórnar frá Norðurlandi teymi hljóðfæraleikara sem starfar í Los Angeles auk þess að vera á ferð og flugi. Þá má nefna að menningarhúsið Hof á Akureyri hefur verið vettvangur upptöku á tónlist fyrir alþjóðlega kvikmyndatónlist þar sem Atli hefur fengið fjölda íslenskra hljóðfæraleikara til liðs við sig.
Tónlist Atla var hljóðrituð í Abbey Hall í Lundúnum og hefur verið birt á youtube myndband af því sem fram fór bak við tjöldin auk þess sem heyra má brot af tónlist Atla á myndbandinu. Tónlist Atla í Bilal hefur fengið mjög góða dóma en Íslendingar geta nálgast reykinn af réttunum með því að ýta á hlekkinn hér fyrir neðan.