Ein dramatískasta ævisaga Íslendings sem skrifuð var á síðustu öld er komin út að nýju, 70 árum eftir að hún kom fyrst út. Bókin heitir Í fangabúðum nasista, skrifuð af Íslendingnum Leifi H. Muller í lok seinni heimstyrjaldarinnar, en bókin er líklega ein sú fyrsta sem rituð var í heiminum um Helförina, að því er Wiesenthal-stofnunin hefur fullyrt.
Örlagasaga Leifs er með ólíkindum: Haustið 1942 handtók Gestapó Leif í Osló, sem þá var 22 ára íslenskur námsmaðaur í borginni. Honum var gert að sök að hafa ætlað að yfirgefa landið með ólöglegum hætti. Við tók hjá Leifi einhver hryllilegasta fangelsisvist sem Íslendingur hefur þurft að þola, fyrst í Grini-fangelsinu í Noregi og síðar í hinum alræmdu Sachsenhausen-fangabúðum í Þýskalandi. Í Sachsenhausen var hver dagur barátta upp á líf og dauða undir járnhæl nasista þar sem hungur, sjúkdómar, pyntingar og dauði voru daglegt brauð.
Um þessar mundir eru 70 ár síðan Leifur losnaði úr fangabúðunum. Hann skrifaði um þetta skelfilega tímabil í lífi sínu þegar eftir heimkomuna til Íslands í stríðslok og kom bókin út í september 1945. Sagnfræðingarnir Hallur Örn Jónsson og Jón Ingvar Kjaran skrifa inngang að bókinni sem og eftirmála.