Íslendingur gaf bowie sígarettu

Sindri Freysson, blaðamaður og rithöfundur, rifjar upp vegna andláts Davids Bowie upp klukkutíma í lífinu þegar hann tók stórt viðtal við Bowie fyrir Moggann.

Í færslu á eigin fésbók lýsir Sindri þegar fundum við goðið bar saman á svítu á Rihga Royal Hotel á hlýjum vordegi í New York fyrir 20 árum.

„Við sátum andspænis hvor öðrum í hátt í klukkutíma við borð hliðina á stórum glugga og hann svaraði öllum spurningum mínum með óviðjafnanlegri blöndu af skarpri greind og skemmtilegri kímnigáfu,“ skrifar Sindri.

Hann hripaði svörin kappsamlega niður í skrifblokkina og upptökutækin tvö sem blaðamaðurinn hafði meðferðis til að ekkert myndi klúðrast.

„Við reyktum báðir og þegar hann kláraði Marlboro Lights-pakkann sinn þáði hann Winston Lights hjá mér og ég hugsaði með mér; fjandakornið, hérna sit ég á hóteli í New York og er að gefa Bowie sígó! Lífið gæti verið verra.“

En nú er Bowie farinn.

Lifir þó í verkum sínum áfram.