Íslensk kona, búsett í Frakklandi, segir að allt sé vitlaust í hverfi sem annars sé dags daglega afar rólegt vegna eftirmála hryðjuverkanna.
„Það er allt vitlaust hérna og furðulegt að ekki skuli vera varað við neinu,“ skrifar Íslendingurinn, Kristín Jónsdóttir á facebook, rétt í þessu.
Hún segir að lögreglubílar þjóti í gegnum litla rólega bæinn hennar, Romainville, með tilheyrandi sírenuvæli.
„Ég er dauðhrædd og verð á ferðinni með krakkana, því ekkert hefur verið tilkynnt um að felld verði niður dagskrá þeirra sem er þéttskipuð og flókin á miðvikudögum.“
Fram hefir komið í fréttum í morgun að skotbardagi hafi orðið í Saint Denis, um 10 mín. aksturfjarlægð frá bæ Kristínar.
Aðgerðir standa yfir þar sem fréttir herma að verið sé að vinna á meintum hryðjuverkamönnum eftir Parísarmorðin um helgina.